Góð byrjun Suðurnesjaliðanna
Grindavík og Reynir nældu sér í þrjú stig í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld en Njarðvíkingar náðu í eitt stig á útivelli. Sandgerðingar skelltu Fjölnismönnum 3-0 og Grindavík lagði Stjörnuna 3-1. Njarðvíkingar gerðu 2-2 jafntefli við Leiknismenn.
Í Sandgerði var staðan jöfn, 0-0 í hálfleik en gestirnir úr Fjölni misstu mann út af með rautt spjald og eftir það rúlluðu Sandgerðingar yfir Fjölni. Brynjar Örn Guðmundsson kom Reyni í 1-0 og Björn Ingvar Björnsson bætti við öðru markinu. Það var svo Hafsteinn Rúnarsson sem rak smiðshöggið með þriðja marki Sandgerðinga. Sankölluð draumabyrjun hjá Reynismönnum sem spáð var næst neðsta sæti deildarinnar fyrir leiktíðina.
Njarðvíkingar gerðu þokkalega ferð í höfuðstaðinn og nældu sér í stig gegn Leiknismönnum. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli og var það Alfreð Elías Jóhannsson sem kom Njarðvíkingum í 1-0 og síðar komust Njarðvíkingar í 2-0 eftir sjálfsmark hjá Leikni. Heimamenn
Grindvíkingar bættu vel fyrir 5-0 tapið gegn Stjörnunni í deildarbikarnum í kvöld með 3-1 sigri í Garðabænum.
Stjörnumenn komust í 1-0 en Grindvíkingar gerðu næstu þrjú mörk. Jöfnunarmarkið gerði
Glæsileg byrjun hjá Suðurnesjaliðinum en eins og þegar hefur komið fram nældu Keflvíkingar sér í 3 stig í Landsbankadeildinni í kvöld með 2-1 sigri á KR í Vesturbænum.
VF-mynd/ [email protected] –