Bygg
Bygg

Íþróttir

Glæsilegur árangur hnefaleikafólks í Danmörku
Föstudagur 18. október 2013 kl. 09:22

Glæsilegur árangur hnefaleikafólks í Danmörku

Fimm keppendur frá Suðurnesjum tóku þá í hinu árlega hnefaleikamóti Hsk Box cup í Hilleröd í Danmörku á dögunum. Um 300 keppendur voru skráðir til leiks í mótið þar á meðal voru fulltrúar Hnefaleikafélags Reykjanesbæjar.

Af Suðurnesjamönnum þá fengu þau Alexander Róbertsson, Tómas Einar Ólafsson og Ína Rut Eiríksdóttir bronsverðlaun, síðan komst Árni Kristgeirsson í úrslitin og fékk silfur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Átta keppendur fóru frá Hafnarfirði en Njarðvíkurmærin Helga Valdís Björnsdóttir var þeirra á meðal. Hún hlaut gullverðlaun í sínum flokki. Einnig vann Keflvíkingurinn Gunnar Davíð Gunanrsson til gullverðlauna en hann keppir fyrir hönd Hafnarfjarðar. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Suðurnesjafólkinu.

Viðtal við Helgu Valdísi í Víkurfréttum má sjá hér.

Hér að neðan má sjá myndbönd af bardaga þeirra Tómasar Ólafssonar og Árna Kristgeirssonar.