Bygg
Bygg

Íþróttir

Glæsilegt töltmót hjá Mána
Fimmtudagur 22. mars 2007 kl. 12:26

Glæsilegt töltmót hjá Mána

Töltmót K. Steinarssonar fór fram um síðustu helgi í reiðhöllinni að Mánagrund í Reykjanesbæ. Um 40 börn og unglingar tóku þátt í mótinu en þetta var stærsta K. Steinarsson mótið til þessa. Knapar í mótinu komu allir af Suðurnesjum en keppt var í barnaflokki, unglingaflokki og ungmennaflokki. Þá voru einnig tveir pollaflokkar í töltmótinu en allir þátttakendur í pollaflokkunum fengu þátttökubikar að móti loknu.

 

Systkinin Jóhanna Margrét Snorradóttir og Ásmundur Ernir Snorrason voru sigursæl í mótinu en Jóhanna hafði sigur í barnaflokki á Djákna frá Feti. Ásmundur varð hlutskarpastur í unglingaflokki á Djásn frá Hlemmiskeiði en það var Liga Liepina sem var sigurvegari í ungmennaflokki en aðeins tveir þátttakendur voru í flokknum. Liga bar sigur úr býtum á Perlu frá Hólabaki. Glæsilegasta parið í mótinu voru þau Ólöf Rún Guðmundsdóttir og Toppa frá Vatnsholti.

 

Á föstudagskvöldið fyrir töltmót K. Steinarssonar fór karlatöltmót fram að Mánagrund og annað kvöld kl. 20:00 fer kvennatöltmótið fram. Mikið hefur verið að gerast í starfi Mána síðustu misseri og þá hefur æskulýðsstarfið tekið stakkaskiptum og sést það best á fjölgandi keppendum í innanfélagsmótum Mána.

 

Einnig er hægt að skoða myndasafn frá mótinu hér hægra megin á vf.is undir liðnum Ljósmyndir

 

[email protected]

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn