Glæsilegt æfingasvæði Keflavíkur vígt
Á föstudaginn var æfinga- og keppnissvæði knattspyrnudeildar Keflavíkur að Iðavöllum 7 vígt formlega og fengu yngri flokkar Keflavíkur það þá afhent til afnota.
Uppbygging svæðisins er hluti af samningi knattspyrnudeildar og Reykjanesbæjar um uppbyggingu knattspyrnuaðstöðu í Keflavík.
Völlurinn að Iðavöllum hefur verið í notkun um tíma en nú er þar kominn búninga- og salernisaðstaða sem hefur sérlega vantað. Þar verður nú aðalæfinga- og keppnisaðstaða yngri flokka Keflavíkur.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, afhenti knattspyrnudeild húsið fyrir hönd bæjarins og lagði áherslu á að áfram yrði haldið með uppbyggingu aðstöðu við Iðavelli og aðalvöllinn við Hringbraut en auk þess er verið að undirbúa uppbyggingu á nýju svæði við Reykjaneshölllina.