Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Glæsileg fimleikasýning í Grindavík
Miðvikudagur 16. desember 2009 kl. 16:24

Glæsileg fimleikasýning í Grindavík

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sunnudaginn 13. desember var fimleikasýning UMFG haldin í íþróttahúsinu fyrir 350 áhorfendum og þótti hin glæsilegasta. Jólasýningin var haldin að frumkvæði Margrétar Valdimarsdóttur þjálfara, sem kom til liðs við deildina nú í haust. Fram kom hjá henni að sýninginn hefði ekki getað orðið að veruleika nema fyrir tilstuðlan iðkendanna sjálfra og stuðnings fyrirtækja í bænum.

Í dag eru um 100 krakkar að æfa fimleika hjá fimleikadeild UMFG, allt frá 3ja til15 ára og komu þeir nánast allir fram og sýndu listir sínar. Fyrir hlé sýndu krakkar úr 1.-9. bekk æfingar á jafnvægisslá, trampolíni og dýnu. Eftir hlé las Lísa úr Idolinu jólasögu sem Unnur Guðmundsdóttir og Katla M. Þormarsdóttir, nemendur úr 6. bekk sömdu. Meðan jólasagan var lesin komu hóparnir fram og sýndu atriði sín við undirleik tónlistar.

Í lokaatriði sýningarinnar komu allir þátttakendur fram í bolum, þar sem nöfn fyrirtækjanna mynduðu jólatré á bakinu. Sýninginn endaði á því að nær öll ljós í húsinu voru slökkt, þegar þau voru kveikt aftur höfu börnin raðað sér á gólfið og myndað orðið jól.

Almenn ánægja var með sýninguna og þótti hún mjög vel skipulögð, enda brostu þjálfarar og aðstandendur fimleikadeildarinnar breitt að lokinni sýningu.