Gjafmildi KSÍ manna
UEFA hefur ákveðið, líkt og áður, að hluti af þeim tekjum sem sambandið hafði af Meistaradeild UEFA (Champions League) 2010/2011 skuli renna til félaga í öllum aðildarlöndum UEFA til eflingar knattspyrnu barna- og unglinga. Uppgjör vegna Meistaradeildarinnar sem lauk vorið 2011 hefur nú farið fram og fá íslensk félög um 43 milljónir króna í sinn hlut til barna- og unglingastarfs. Samkvæmt ákvörðun UEFA skulu öll framlög vegna Meistaradeildar UEFA til barna – og unglingastarfs einungis renna til félaga í efstu deild. Framlag UEFA skiptist því á milli félaga í Pepsi-deild karla.
Stjórn KSÍ hefur samþykkt að leggja til um 45 milljónir króna til viðbótar sem skiptist á milli aðildarfélaga í öðrum deildum og utan deilda en skipting á framlagi til barna – og unglingastarfs verður þá með þeim hætti að félög úr Pepsi-deild fá kr. 3.620.000 sem er framlag UEFA, félög úr 1. deild fá kr. 1.600.000 , félög í 2. deild karla fá kr. 1.100.000 hvert, önnur félög í deildarkeppni kr. 800.000 og félög utan deildarkeppni kr. 250.000. Úthlutun er háð því að félög haldi úti starfsemi í yngri flokkum og skulu félög utan deildarkeppni og félög sem ekki halda úti starfsemi hjá báðum kynjum sækja sérstaklega um framlag.
Félögin á Suðurnesjum fá því úthlutað fé eins og sjá má hér að neðan:
Keflvíkingar og Grindvíkingar fá 3.620.000 kr. í sinn hlut hvor.
Njarðvíkingar og Reynismenn fá 1.100.000 kr. hvor.
Þróttur Vogum og Víðir fá 800.000 kr hvor.