Gestur gamli Gylfason bestur í 2. deild
Ódrepandi og óseðjandi eru orð sem lýsa Gesti Gylfasyni hvað best. Gestur gekk í raðir Njarðvíkinga fyrir nýafstaðna leiktíð í 2. deild og í gær var hann kosinn besti leikmaðurinn í 2. deild af þjálfurum og fyrirliðum deildarinnar. Gestur var aðstoðarþjálfari hjá Njarðvík í sumar en liðið vann sér inn þátttökurétt í 1. deild og bíður Gestur spenntur eftir næstu leiktíð.
„Það er alveg sama í hvaða deild ég er í, ég er alltaf bestur eða efnilegastur,“ sagði Gestur léttur í bragði þegar Víkurfréttir höfðu samband við hann. „Þetta var flott í gær og sumarið hjá okkur var frábært,“ sagði Gestur sem ætlar að leika áfram með Njarðvíkingum en ætlar ekki að vera aðstoðarþjálfari liðsins.
Gestur tók ekki fyrir það að kosningin hefði komið sér á óvart og sagði viðurkenninguna ánægjulega en hann var einnig kosinn besti leikmaðurinn á lokahófi Knattspyrnudeildar Njarðvíkur fyrir skemmstu.
„Nú erum við komnir í sterka deild og ef við fáum 2-3 góða leikmenn til okkar getum við vel blandað okkur í fimm efstu sæti deildarinnar og ég er ekki smeykur við að segja það,“ sagði Gestur sem bráðlega verður 38 ára gamall. Sögurnar sem ganga af Gesti eru lyginni líkastar, þegar hann æfði undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar hjá Keflavík var á einni æfingunni verið að mjólkursýrumæla hópinn. Gestur kom langbest út úr mælingunni og var elstur í hópnum. Áreiðanlegur heimildarmaður Víkurfrétta segir að Guðjón hafi froðufellt yfir skelfilegu ástandi ungu leikmannanna en glott við tönn á þessu feiknaformi sem Gestur virðist vera í allan ársins hring.
„Ég veit ég gæti spilað í efstu deild en hausinn hlýðir ekki alltaf líkamanum,“ sagði Gestur sem nokkrum sinnum hefur fengið að heyra það að hann sé nú ekki skemmtilegasti andstæðingurinn. „Ég er aðgangsharður og grimmur enn þann dag í dag og hef heyrt það t.d. á lokahófi KSÍ að ég sé leiðinlegur leikmaður því mörgum finnst ég vera grófur.“ Hvað sem leiðindum líður þá var Gestur valinn besti leikmaður 2. deildar og segist hafa mikið skap. Oftar en ekki hefur undirritaður séð Gest taka góða byltu með einhverjum leikmanni og standa upp skælbrosandi þó fátt hafi verið broslegt við samskiptin. „Ef einhver nær mér upp þá getur svo farið að ég detti alveg út úr leiknum og reyni jafnvel að hefna mín, annars spilar maður bara sinn leik og hefur gaman af þessu,“ sagði Gestur.
Gestur var ánægður með árangur Njarðvíkinga í sumar og bíður spenntur eftir næstu leiktíð. Hann mun örugglega mæta í undirbúningstímabilið í besta forminu af öllum leikmönnum Njarðvíkur, rétt eins og hann hefur gert hjá öðrum liðum.
VF-myndir/ Hilmir Heiðar, mynd 1, og Halldór Rósmundur, mynd 2.