Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Garðmenn sættast - öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir
Þriðjudagur 4. september 2012 kl. 13:03

Garðmenn sættast - öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir

Garðmennirnir Jóhann B. Guðmundsson og Guðjón Árni Antoníusson hittust í hádeginu á sáttafundi. Fundurinn fór fram á Hamborgarafabrikkunni í Reykjavík.

Þeir Jóhann og Guðjón Árni tókust á í leik FH og Keflavíkur í Pepsi-deildinni í knattspyrnu og þung orð voru látin falla í viðtölum eftir leikinn, þar sem Jóhann fékk rautt spjald eftir viðskipti sín við Guðjón Árna.

Þeir Jóhann og Guðjón Árni eru báðir fæddir og uppaldir í Garði, léku knattspyrnu á yngri árum hjá Víði og voru samherjar hjá Keflavík.

Við mynd sem Jóhann birtir á fésbókarsíðu sinni segir: „Sáttafundur, öll dýrin í skóginum eru eiga að vera vinir :)“

Jóhann sendi eftirfarandi yfirlýsingu frá sér skömmu eftir miðnætti í gær:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Mig langar að biðja félaga minn og fyrrverandi liðsfélaga, Guðjón Árna Antoníusson, afsökunar á því að hafa ýjað að því að hann væri illa innrættur í viðtali við vefmiðla í gær. Orðin lét ég falla í miklu uppnámi, skömmu eftir leik leik FH og Keflavíkur, um atvik sem leiddi til þess að ég fékk að líta rauða spjaldið. Ég var og er vissulega sár og svekktur og afar ósáttur við framkomu hans í umræddu atviki en þykir miður ef orð mín skertu mannorð hans. Guðjón Árni er toppdrengur og það er aldrei að vita nema ég bjóði honum í afmælið mitt, haldi ég á annað borð uppá það.“