Gáfu Þrótturum froskalappir
Nesbúegg frá Vogum færði sunddeild Þróttar veglega gjöf á dögunum sem mun styrkja starf deildarinnar. Samkvæmt Marteini Ægissyni framkvæmdastjóra Þróttar mun gjöf þessi koma sér gríðarlega vel fyrir deildina og auka ánægju iðkenda sem eru u.þ.b. 30 talsins. Nesbúegg styrkti Þróttara með froskalöppum fyrir alla.
Baldvin Hróar Jónsson markaðsstjóri hjá Nesbúeggjum segir að það sé mikilvægt að styðja við bakið á íþróttalífinu í bæjarfélaginu og Nesbúegg vildi með þessum hætti styðja við bakið á félaginu og auka ánægju yngri iðkenda. Ekki megi gleyma forvarnargildinu.
„Þróttarar hafa verið að gera frábæra hluti í knattspynunni uppá síðkastið og við viljum taka þátt í þessum uppgangi og ætlum að styðja við bakið á sundinu til að koma fleiri greinum á kortið í sveitarfélaginu,“ sagði Baldvin Hróar. Nesbúegg hafa verið ötulir við að styrkja Þrótt síðustu áratugina.