Gæfuspor UMFÍ í Reykjanesbæ
Heilsuverndarátakinu Gæfusporum var hrundið formlega af stað í morgun en um er að ræða átak sem UMFÍ og Sparisjóðurinn standa að til að hvetja fólk 60 ára og eldri til að hreyfa sig reglulega. Átakið hófst á fimm stöðum í dag, m.a. í Reykjanesbæ.
Myndarlegur hópur göngufólks var saman komið fyrir utan Sparisjóðinn í Keflavík þar sem Einar Haraldsson, formaður Keflavíkur setti átakið formlega og kynnti fyrir göngufólki.
Ein meginhugmyndin bak við átakið er að fá fólk til að taka sjálft frumkvæði í eigin heilsurækt, en göngufólk fékk einnig að gjöf frá Sparisjóðnum veglegan jakka merktan átakinu.
VF-myndir/Þorgils