Íþróttir

Gabríel Sindri til Njarðvíkur
Páll Kristinsson og Gabríel Sindri handsala samninginn/ UMFN.is.
Mánudagur 28. maí 2018 kl. 09:27

Gabríel Sindri til Njarðvíkur

Bakvörðurinn Gabríel Sindri Möller mun leika með Njarðvík á næsta tímabili í Domino´s-deild karla í körfu. Gabríel er uppalinn í Njarðvík, hann lék með Gnúpverjum í 1. deildinni á síðasta tímabili, en hann fór til Gnúpverja á venslasamning. Gabríel hlaut á dögunum Elfarsbikarinn á lokahófi yngri flokka í Njarðvík en hann er afhentur efnilegasta leikmanni karla í yngri flokkum.

Gabríel gerði samning til eins árs og hefur hann verið lykilmaður íunglingaflokki, Gabríel var valinn í æfingahóp U20 ára liðs Íslands sem leikur í Evrópukeppninni í sumar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024