Íþróttir

Fyrstur Grindvíkinga með svarta beltið
Björn Lúkas, annar frá vinstri, eftir að hafa fengið svarta beltið afhent.
Mánudagur 21. október 2013 kl. 10:10

Fyrstur Grindvíkinga með svarta beltið

Björn Lúkas Haraldsson taekwondokappi er fyrsti Grindvíkingurinn til þess að fá svarta beltið í taekwondo en prófin voru haldin um helgina.

Alls voru 10 keppendur sem þreyttu svartabeltisprófið. Björn Lúkas stóðst það með stæl. Björn Lúkas var valinn íþróttamaður ársins í Grindavík á síðasta ári.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024