Fyrsti sigur Njarðvíkur í deildarbikarnum
Knattspyrnulið Njarðvíkur vann sinn fyrsta sigur í deildarbikarkeppni karla í gær þegar þeir unnu Þór frá Akureyri 2-0, en mörkin skoruðu Eyþór Guðnason og Alfreð Elías Jóhannsson snemma í leiknum. Kristján Helgi Jóhannsson lék þar sinn fyrsta leik með félaginu eftir að hafa skipt yfir frá Keflavík.
Njarðvík er enn neðst í B-riðli efri deildar eftir einn sigur og fimm töp.