Fyrsti sigur Njarðvíkinga
Það var barátta og kraftur sem einkenndi Njarðvíkurliðið í kvöld er þeir tóku á móti Stjörnumönnum úr Garðabæ. Gestirnir voru skrefinu á undan framan af fyrri hálfleik en Njarðvíkurliðið var aldrei langt undan. Strákarnir komust í 3ja stiga forystu seint í öðrum leikhluta en Stjörnumenn tóku þá 0-9 sprett og leiddu svo 42-48 í hálfleik.
Njarðvíkurliðið mætti miklu grimmara út í síðari hálfleikinn og vörnin var mun betri en í fyrri hálfleiknum. Með góðu áhlaupi í 3ja leikhluta snéru strákarnir leiknum sér í vil og komust í 65-60 og leiddu svo 73-67 að þremur leikhlutum loknum. Hjörtur Hrafn og Elvar komu gríðarlega sterkir inn í leikhlutann og allt liðið fylgdi á eftir. Hjörtur, Elvar og Travis drógu vagninn í stigaskoruninni á lokasprettinum en svo komu líka stórir þristar frá Rúnari Inga og Maciej.
Stjörnumenn reyndu hvað þeir gátu til að koma til baka en strákarnir héldu haus og lönduðu góðum sigri þar sem lokatölur urðu 93-81.
Fyrsti sigur okkar manna staðreynd í mótinu og á sama tíma fyrsta tap Garðbæinga en þeir leika úrslitaleik við Keflavík í mótinu á föstudag.
Stigaskor UMFN í kvöld: Travis Holmes með 23, Hjörtur Hrafn Einarsson 20, Elvar Már Friðriksson 16, Rúnar Ingi Erlingsson 10, Maciej Baginski 9, Ólafur Helgi Jónsson 5, Styrmir Gauti Fjeldsted 5, Hilmar Hafsteinsson 3, Oddur Birnir Pétursson 2.
Umfjöllun umfn.is