Fyrsta tap Keflvíkinga í sumar
KR-ingar héldu áfram að sækja og á 28. mínútu skoraði Sigurður Ragnar Eyjólfsson mark fyrir KR með glæsilegu skoti fyrir utan teig eftir hroðaleg mistök Ragnars Steinarssonar sem gaf boltann beint í fætur Sigurðar. Þannig var staðan í hálfleik en óhætt er að segja að Keflvíkingar hafi vægast sakt verið arfaslakir í fyrri hálfleik og í raun stálheppnir að vera einungis 1-0 undir.
Nýtt Keflavíkurlið mætti til leiks í síðari hálfleik og þar má helstan nefna Adolf Sveinsson sem kom inná sem varamaður í hálfleik. Heimamenn hófu að sækja mun meira og með Adolf í broddi fylkinga áttu þeir hverja sóknina á fætur annarri á meðan ekkert gekk hjá KR.
Keflvíkingar fengu hvert dauðafærið á fætur öðru þar sem m.a. þrír leikmenn liðsins hittu ekki boltann í upplögðu færi og Magnús Þorsteinsson klikkaði úr opnu skoti eftir sendingu frá Þórarini Kristjánssyni á 69. mínútu. Síðasta færi Keflvíkinga kom á 86. mínútu þegar boltinn barst inn á teig frá Jónasi Sævarssyni en á einhvern óskiljanlegan hátt tókst þeim ekki að skora og jafna leikinn. Í blálokin meiddist Guðmundur Steinarsson á höfði eð háls og fór hann burt með sjúkrabíl til frekari skoðunar
Adolf Sveinsson á hrós skilið fyrir frábæra baráttu í leiknum og var hann besti leikmaður vallarins ásamt Kristjáni Jóhannssyni sem spilaði feikna vel á miðjunni en fór meiddur af leikvelli þegar um 10 mínútur voru eftir. Adolf sýndi í leiknum að það var vitleysa að taka hann úr byrjunarliðinu enda verður það að teljast nokkuð skrítið að liðinu hafi verið breytt þar sem liðið var í efsta sæti deildarinnar fyrir umferðina, búnir að spila vel og ekki tapað leik. Haraldur Guðmundsson og Zoran Ljubicic áttu einnig ágætan leik í vörn Keflvíkinga.
Keflvíkingar eru því enn með 8 stig í deildinni í 2. - 5. sæti.
VF-maður leiksins: Kristján Jóhannsson, spilaði vel á miðjunni og átti fjölmargar vel heppnaðar sendingar.
Tilþrif leiksins: Mark Sigurðar Ragnars var glæsilegt.
Dómarinn: Ágætur þegar líða tók á leikinn en var frekar slakur í fyrri hálfleik.