Fyrsta tap Keflavíkur
Keflavíkurstúlkur glopruðu niður að því er virtist unnum leik gegn gríðar sterku liði Hamars í Iceland Express deild kvenna í körfu í gærkvöldi. Lokatölur urðu 69-72 eftir að Keflavík hafði leitt allan leikinn. Fyrsta tap liðsins í deildinni.
Keflavíkurstúlkur drifnar áfram af hinni frábæru Jacquline Adamshick sem er án efa einn besti útlendingur sem kvennalið Keflavíkur hefur haft í áraraðir, byrjuðu vel og náðu strax forskoti sem var iðulega í kringum tíu stig. Forystan eftir fyrsta leikhluta var fjögur stig 23-19 en tíu stig í hálfleik 42-32.
Heimaliðið byrjaði vel í upphafi þriðja leikhluta og náði mest þrettán stiga forskoti 50-37 og var á mikilli siglingu. Munurinn í lok þriðja hlutans var níu stig 55-46 og fátt sem benti til annars en Keflavík myndi innbyrða nokkuð öruggan sigur. Þær voru betri á flestum sviðum en Jaleesa Butler hélt Hamri á floti með góðum leik. Ellefu stig í röð frá dömunum úr Hveragerði breytti hins vegar leiknum í upphafi fjórða leikhluta og gerði hann verulega spennandi alveg fram á síðustu sekúndu. Hamar náði forystu í fyrsta sinn þegar fjórar mínútur voru til leiksloka og síðan skiptust liðin á að hafa 1-3 stiga forskot. Þegar ein mínúta var eftir var Hamar með eitt stig í forskot. Þá skoraði Jacquline Adamshick en Butler svaraði fyrir Hamar þegar um 15 sekúndur voru til leiksloka. Þegar helmingur af þeim tíma var eftir eða um 7 sekúndur var brotið á Adamshick undir körfunni og hún fékk tvö skot. Hún gat jafnað og komið Keflavík í forystu ef hún hefði hitt úr báðum skoutnum.. Hún hafði fyrr í leiknum skorað úr sex skotum sínum af vítalínunni en nú, þegar mest á reið, fór hvorugt ofan í og Hamarsstúlkur náðu frákastinu og fengu villu sem gaf tvö vítaskot. Þau tók Butler og setti ofan í. Fjórar sekúndur dugði Keflavík ekki sem eftir voru og skottilraun af þriggja stiga línunni geigaði. Hamarsstúllkur fögnuðu vel og innilega og máttu gera það því þær gáfust ekki upp og uppskáru sannkallaðan baráttusigur.
„Það leit ekki margt út fyrir annað en Keflavíkursigur í þessum leik en þegar við náðum að vinna forskotið niður kom auka kraftur sem dugði til sigurs,“ sagði Ágúst Björgvinsson, þjálfari Hamars.
Útlendingarnir voru lang mest áberandi í báðum liðum. Butler skoraði 29 stig hjá Hamri og var erfið inni í teig Keflavíkur. Adamshick hjá Keflavík skoraði 28 stig og tók 23 fráköst og var með 70% nýtingu í þriggja stiga skotum og frá vítalínunni. Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 17 stig og Birna Valgarðsdóttir tíu, Pálína 6. Það er ekki laust við að útlendingurinn hjá Keflavík hafi tekið við forystuhlutverki sem Birna sinnti í Keflavík á síðustu leiktíð. Liðið er samt mjög sterkt og hefði í flestum tilfellum klárað þennan leik. Breiddin virðist meiri í liðinu en á síðustu leiktíð og ljóst að liðið verður í toppbaráttunni í vetur komi ekki eitthvað óvænt upp á.
Efst má sjá skemmtilega baráttumynd þar sem Adamshick og Butler eigast við. Á næstu mynd er Birna Valgarðardóttir.
Bryndís Guðmundsson er hér í fjöri undir teignum.
Bestu konur vallarins, Adamshick og Butler háðu einvígi sem endaði með sigri Hamarsdömunnar. Hún skoraði stigi meira og liðið hennar vann. Adamshick var frábær hjá Keflavík alveg fram á síðustu sekúndu leiksins, þá hafði hún tækifæri á að tryggja Keflavík sigur frá vítalínunni en misnotaði tvö skot.
VF-myndir/Páll Orri Pálsson.