HSS
HSS

Íþróttir

Fyrsta deildarmark Sveindísar í Svíþjóð
Sveindís Jane hér í baráttu um boltann í leik með Kristianstad gegn Alingsås FC. Mynd af heimasíðu Alingsås FC
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
mánudaginn 19. apríl 2021 kl. 08:31

Fyrsta deildarmark Sveindísar í Svíþjóð

Kristianstad, sem Sveindís Jane Jónsdóttir leikur með að láni frá Wolfsburg, mætti Eskilstuna United DFF í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildar kvenna í gær. Það tók Sveindísi rétt rúmar tíu mínútur að komast á blað með fyrsta deildarmarki sínu fyrir félagið.

Frumraunar Sveindísar var beðið með mikilli eftirvæntingu í Svíþjóð og hún stóð undir þeim væntingum sem til hennar eru gerðar. Sveindís og félagar léku á útivelli í gær og byrjuðu betur. Á elleftu mínútu komst Kristianstad í hraða sókn sem endaði á að Sveindís fékk góða sendingu frá varnarmanni Eskilstuna sem hún refsaði fyrir og afgreiddi af öryggi í markið. Fyrsta mark Sveindísar fyrir Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni orðið að veruleika.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Eskilstuna náði þó að jafna leikinn á 41. mínútu og þar við sat. Jafntefli í fyrstu umferð hjá Sveindísi og félögum.

Í spilaranum hér að neðan má sjá Sveindísi Jane skora markið í myndbroti úr íþróttafréttum Stöðvar tvö.