Fyrrum þjálfarinn sá um Reynismenn
Sandgerðingar eru enn án stiga í 2. deild karla í knattspyrnu eftir 1-2 tap á heimavelli gegn Gróttu á fimmtudag. Gunnar Wigelund skoraði mark heimamanna en það var fyrrum þjálfari Reynis, Jens Elvar Sævarsson, sem skoraði sigurmark leiksins fyrir Gróttu. Reynir er enn án stiga á botni deildarinnar eftir þrjá leiki. Grannar þeirra úr Njarðvík hafa sömuleiðis ekki náð að sækja stig eftir tvo leiku en þeir leika gegn Hetti síðar í dag.