Fyrirlestur um líkamsþjálfun kylfinga
Í kvöld halda Guðjón Bergmann og Brynjar Geirsson fyrirlestur um líkamsþjálfun kylfinga í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ klukkan 20.00-22.00.
Brynjar hefur stundað golf til margra ára og kennir við Íþróttaakademíuna. Guðjón er hins vegar þekktari fyrir jógakennslu og hugleiðslu en hann mun koma inn á þætti sem hann kann vel og skipta miklu máli í golfi. Þetta eru þættir eins og líkamsbeiting, samhæfing, teygjur, öndun og einbeiting.
Guðjón og Brynjar segja upphitunar- og teygjuæfingar vera gríðarlega stóran þátt í hvaða íþrótt sem er og þar er golfið engin undantekning. Kylfingar byrja hins vegar gjarnan að slá án þess að hita upp og fá því oft í bakið. Svona meiðsli má auðveldlega koma í veg fyrir með einföldum upphitunar- og teygjuæfingum sem kenndar verða í kvöld ásamt fleiru.
Skráning á fyrirlesturinn er í síma 420-5500 og á [email protected]
www.kylfingur.is