Fyrirlestur um golf í Íþróttaakademíunni
Í gærkvöldi var fyrirlestur í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ þar sem farið var yfir þá þætti líkamsþjálfunar sem kylfingar ættu að huga að til að ná sem bestum árangri á golfvellinum. Liðleiki, kraftur, þol og samhæfing var meðal þeirra þátta sem farið var yfir og hvernig sé best fyrir kylfinga að bæta þessa þætti. Fyrirlesarar voru Brynjar Eldon Geirsson og Guðjón Bergmann.
Næsti fyrirlestur ætlaður kylfingum er fyrirhugaður þriðjudaginn 24. október og nefnist hann: Frá fyrsta til loka pútts. Fjallað verður um hvernig maður ræður við sjálfan sig og leikinn og hvernig maður bætir eigin getu með því að þvælast ekki fyrir sér á vellinum. Fyrirlesari er Lárus Ýmir.
Allir fyrirlestrar eru frá 20:00 - 22:00. Verð kr. 2 000.
Skráning í síma 420-5500 eða á póstfangið [email protected].
Myndir/JBÓ: Frá fyrirlestrinum í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ í gærkvödi.
www.kylfingur.is