FUTSAL: Keflavík sigraði í fyrsta leiknum
Forkeppni evrópukeppninnar í Futsal G-riðli hófst í gær en Knattspyrnudeild Keflavíkur annast mótshaldið.. Eindhoven og Kremlin Bicetre France hófu leik kl 15:00 og lauk leiknum 3-3 eftir æsispennandi leik þar sem Eindhoven var með forystuna þegar lítið var eftir.
Svo kom að Keflvíkingum að hefja leik og mótherjinn var Vimmerby IF frá Svíþjóð. Leikurinn byrjaði frekar rólega og það var ekki fyrr en á 9.mín þegar Viktor Smári Hafsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins og þar með fyrsta mark Keflvíkinga í evrópukeppninni í FUTSAL. Magnús Sverrir Þorsteinsson skoraði stuttu síðar og kom Keflavík í 2-0. Lið Vimmerby átti ágætis sóknir en Eyþór Ingi Júlíusson í markinu átti fanta góðan leik og kom í veg fyrir að þeir skoruðu. Staðan 2-0 í hálfleik og Keflavík mun betra.
Í seinni hálfleik ringdi inn mörkum. Keflavík komst í 6-0 og liðið fór hamförum. Að lokum fór svo að Keflavík sigraði 10-6 í fjörugum leik. Fyrsti sigur hjá íslensku félagsliði í evrópukeppni í FUTSAL. Keflavík sýndi góðan leik í dag og voru töluvert betri aðilinn, en þreyta fór að segja til sín í restina þegar mótherjinn setti nokkur. Keflavík á ágætis möguleika í riðlinum, en liðin sem hófu fyrsta leikinn í riðlinum eru góð, en á góðum degi með góðum leik er hægt að vinna þessi bæði lið.
Þess má geta að öll umgjörðin hjá knattspyrnudeild Keflavíkur varðandi mótið er til mikils sóma og allt til fyrirmyndar. Eftirlitsmenn UEFA voru hæst ánægðir með allt og gefa Keflavík frábæra einkunn fyrir mótshaldið.
Næsti leikur er í dag kl 17:30 gegn Kremlin Bicetre frá Frakklandi.
Leikur Vimmerby og Eindhoven hefst kl 15:00
Fólk er hvatt til að koma og kíkja á keppnina á Ásvöllum, enda ekki á hverju ári sem spilað er í evrópukeppni í FUTSAL á Íslandi.
Mörk Keflavíkur skoruðu: Magnús Sverrir Þorsteinsson 4, Bojan Stefán Ljubicic 2, Guðmundur Steinarsson 2, Viktor Smári Hafsteinsson 1 og Lúkas Malesa 1.
Byrjunarlið Keflavíkur í dag: Eyþór Ingi Júlíusson, Haraldur Guðmundsson, Guðmundur Steinarsson, Bojan Stefán Ljubicic og Magnús Sverrir Þorsteinsson fyrirliði.
Aðrir leikmenn sem allir komu við sögu í leiknum: Árni Freyr Ásgeirsson, Magnús Þór Magnússon, Viktor Smári Hafsteinsson, Arnór Ingvi Traustason, Theodór Halldórsson, Zoran Daníel Ljubicic og Lúkas Malesa.
Liðsstjórn: Willum Þór Þórsson, Þór Hinriksson, Jón Örvar Arason, Falur Helgi Daðason, Þórólfur Þorsteinsson og Björgvin Björgvinsson.