Fulltrúar Nes á Alþjóðaleika Special Olympics
Special Olympics á Íslandi, sem er í umsjón Íþróttasambands fatlaðra sendir 48 keppendur á leikana til keppni í 10 íþróttagreinum þ.e. boccia, bogfimi, borðtennis, fimleikum, frjálsum íþróttum, golfi, handbolta, keilu, knattspyrnu og lyftingum. Ísland sendir í fyrsta skiptið þátttakendur til keppni í handknattleik og golfi. Þetta er fjölmennasti hópurinn sem ÍF hefur sent á alþjóðaleika Special Olympics og er því verkefnið gríðarlega umfangsmikið og kostnaðarsamt. Leikarnir eru frá 21 til 29 júní en keppendur munu fara út 16 júní og dvelja í vinabæ Íslands sem búinn var til fyrir leikana, Newry á N-Írlandi.Þessir leikar eru á 4 ára fresti og hafa ávallt verið haldnir í Bandaríkjunum og síðast árið 1999 í Norður Karolinu. Þar átti NES fjóra keppendur og einn þjálfara.
Þessir Alþjóðaleikar verða stærsti íþróttaviðburður ársins 2003. Þar er áætlað að verði: 7.000 keppendur, 21 íþróttagrein, 3.000 farastjórar/þjálfarar, 28.000 aðstandendur, 166 þátttökuþjóðir, 30.000 sjálfboðaliðar, 1.500 fjölmiðlafulltrúar og 500.000 áhorfendur.
Eftirtaldir einstaklingar frá NES sem keppa á þessum leikum frá Íþróttasambandi fatlaða eru:
Sigurður Benediktsson og Arnar Már Ingibjörnsson kepppa í knattspyrnu og knattleikjum.
Sigríður Ásgeirsdóttir í frjálsum íþróttum
Ásmundur Þórhallsson í lyftingum
Ragnar Ólafsson í golfi.
Þjálfarar á leikana frá NES sem verða þar á vegum Íþróttasambands fatlaða eru:
Guðmundur Brói Sigurðsson í boccia og Anna Lea Björnsdóttir í handknattleik.
Nes á einnig þarna tvo starfsmenn á vegum Alþjóðaleikana og eru það Gísli H. Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson sem munu dæma í handknattleik.