Fullt í vormótið hjá GSG
Það er fiðringur meðal kylfinga landsins um þessar mundir enda styttist óðfluga í golfsumarið. Núna um helgina fara fram tvö opin golfmót, annað þeirra á Kirkjubólsvelli í Sandgerði og er ljóst að kylfingar ætla að fjölmenna á opnu golfvelli landsins.
Þremur dögum fyrir mótið í Sandgerði eru allir rástímar uppbókaðir og það verða því alls 124 kylfingar sem munu keppa í Sandgerði á laugardaginn. Ræst er út frá kl. 9-14 og verður leikið inn á sumarflatir líkt og ávallt á Kirkjubólsvelli.
Mótið fer fram á laugardag og er veðurspáin þokkaleg. Spáð er hægum vindi og um 5 gráðu hita en einhverjir dropar gætu fallið á kylfinga.
www.kylfingur.is