Full tæpt hjá Keflavík
KEFLAVÍK-HAUKAR
Keflvíkingar unnu nauman heimasigur á Haukum í kvöld, 89-82.
Sigurinn var hvorki fallegur né sannfærandi og hefðu úrslitin hæglega getað verið önnur ef ekki hefði verið fyrir frammistöðu Anthony Glovers á lokasprettinum.
Keflvíkingar byrjuðu annars afar vel og virtust öruggir í sínum aðgrðum fyrstu mínúturnar. Glover og Arnar Freyr fóru þar fremstir en sá eini sem átti eitthvað svar í liði gestanna var John Waller.
Um miðjan annan leikhluta var sem heimamenn ætluðu að sigla örugglega framúr þegar þeir náðu 18 stiga forskoti, 44-26. Góður kafli hjá Haukum, þar sem Bojovic setti m.a. þrjár 3ja stiga körfur, breytti stöðunni hins vegar töluvert fyrir hálfleik. Munurinn var þrjú stig, 51-48, en Davíð Þór og Halldór skoruðu síðustu 5 stigin áður en flautan gall.Haukarnir mættu grimmir eins og ljón út í seinni hálfleikinn þar sem þeir skoruðu 11 fyrstu stigin og náðu forystunni. Keflvíkingar voru afar gestrisnir í varnarleik sínum og náðu ekki að skrúfa fyrir flauminn fyrr en í lokafjórðungnum. Þá steig Glover upp og leiddi sína menn með baráttu og krafti. Gunnar Einarsson, fyrirliði, kom líka sterkur inn í vörninni og voru þeir lykillinn að upprisu heimamanna. Þeir jöfnuðu leikin þegar 6 mín lifðu af leiknum og skriðu framúr allt til loka. Lokatölurnar 89-82 og tvö torsótt stig í húsi.
"Við unnum og það skiptir öllu máli," sagði Sigurður Ingimundarson í leikslok. "Þetta var ekki góður leikur hjá okkur, en við áttum ferska menn á bekknum í restina. Svo var Anthony að leika vel og þeir réðu ekkert við hann."
Tölfræði leiksins
VF-myndir/Hilmar Bragi