Friðrik Ragnarsson: Viljinn ræður för
Grindvíkingar mæta Skallagrím í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum
,,Þeir Þorleifur og Páll Axel hafa verið að eiga við flensuskítinn upp á síðkastið og flensan kemur alveg á besta tíma,” sagði Friðrik í samtali við Víkurfréttir. Aðspurður hvernig honum fyndist úrslitakeppnin hafa farið af stað sagði Friðrik að það hefði ekki komið sér á óvart að ÍR hefði lagt KR í gær.
,,ÍR er með mjög svipað lið og KR en stemmningin er greinilega ÍR megin. Reyndar kom það mér á óvart í gær að Keflavík hefði ekki spyrnt meira fótum við gegn Snæfell en Keflvíkingar vinna þetta á sínum heimavelli,” sagði Friðrik sem leggur áherslu á tvennt í kvöld.
,,Við þurfum fyrst og síðast að stoppa þriggja stiga skotin því Skallagrímur lifir á þeim og þá þurfum við einnig að vera duglegir að skipta á öllum skrínum og reyna eftir fremsta megni að stoppa
Skallagrímur-Grindavík
KL. 19:15 í kvöld í Borgarnesi