Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Friðrik með grænt ljós
Mánudagur 26. maí 2008 kl. 11:12

Friðrik með grænt ljós

Körfuknattleiksmaðurinn Friðrik Erlendur Stefánsson hefur fengið grænt ljós frá læknum til þess að halda áfram körfuknattleiksiðkun en þetta kom fram í gær á www.visir.is
 
Friðrik gat ekki leikið með Njarðvíkingum í úrslitakeppninni í vor vegna hjartagalla. Óttast var að Friðrik þyrfti jafnvel að binda enda á körfuboltaferil sinn sökum kvillans. Nú hefur annað komið á daginn en kappinn hefur varann á og segir ekki útilokað að svona komi fyrir aftur.
 
"Ég er búinn að fá grænt ljós á að halda áfram þangað til annað kemur í ljós og töluvert fyrr en ég bjóst við. Það er reyndar ekki útilokað að eitthvað svona komi fyrir aftur, en vonir standa til um að þeir séu komnir fyrir þetta. Það eiga að vera 90% líkur á því að þetta sé orðið gott, en annars eru víst til einhverjar 200 tegundir af þessu meini svo það er kannski erfitt að segja til um það," sagði landsliðsmaðurinn í samtali við Vísi í gærkvöldi.
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024