Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Friðrik heiðraður fyrir 100 landsleiki
Miðvikudagur 29. ágúst 2007 kl. 09:48

Friðrik heiðraður fyrir 100 landsleiki

Miðherjinn Friðrik Erlendur Stefánsson verður í kvöld heiðraður fyrir sinn 100. landsleik fyrir Íslands hönd þegar Ísland tekur á móti Georgíu í Evrópukeppni B-þjóða í Laugardalshöll. Leikurinn hefst kl. 19:15 og fyrir leik fær Friðrik afhent gullúr frá KKÍ fyrir áfangann. Friðrik mun þó leika sinn 104. leik í kvöld fyrir Ísland.

 

Af þessu tilefni hefur öllum landsliðsmönnum sem náð hafa að leika 100 landsleiki eða fleiri verið boðið sem sérstökum heiðursgestum á leikinn. Eftirtaldir leikmenn hafa ná þessum áfanga:

 

Guðmundur Bragason 169
Valur Ingimundarson 164
Jón KR Gíslason 158
Torfi Magnússon 131
Guðjón Skúlason 122
Jón Sigurðsson 120
Teitur Örlygsson 118
Herbert Arnarson 111
Falur Harðarson 106
Jón Arnar Ingvarsson 103

 

Georgíumenn eru í 2. sæti í C-riðli Evrópukeppninnar og berjast hart við Finna um toppsætið sem eru ósigraðir. Íslendingar geta komist ofar í riðilinn en þurfa nauðsynlega á sigri að halda. Ljóst er orðið að íslenska liðið kemst ekki upp úr riðlinum.

 

Fjölmennum í Höllina í kvöld og styðjum duglega við bakið á íslenska liðinu.

 

Mynd: www.kki.is - Friðrik leikur sinn 100. landsleik í kvöld.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024