Fríar sætaferðir í Vesturbæinn
Næstkomandi sunnudag leikur Keflavík mikilvægan leik á útivelli gegn KR í Vesturbænum. Fyrirhugað er að vera með fríar sætaferðir á leikinn frá Sundmiðstöðinni í Keflavík á sunnudag kl. 16:30. Til að meta þörfina á rútu eru áhugasamir beðnir að senda póst á Knattspyrnudeild svo hægt sé að áætla fjöldann. Skorað er á Keflvíkinga að fjölmenna á leikinn, skapa góða stemmningu í stúkunni og fara svo heim glaðir í bragði með þrjú stig í farteskinu.
[email protected]
VF-MYND/Hilmar Bragi: Keflvíkingar bjóða upp á fríar sætaferðir í Vesturbæinn.