Freysteinn Ingi valinn í leikmannahóp U17
Lúðvík Gunnarsson, landsliðsþjálfari U17 karla, hefur valið leikmannahóp til þátttöku í Telki Cup, æfingamóti sem fram fer í Ungverjalandi dagana 14.–20. ágúst næstkomandi.
Njarðvík á einn fulltrúa í hópnum en Freysteinn Ingi Guðnason, leikmaður meistaraflokks karla, hefur verið valinn í verkefnið.
Freysteinn sem er fæddur árið 2007 hefur þegar leikið fimm yngri landsleiki fyrir Íslands hönd. Auk þess hefur Freysteinn leikið sextán meistaraflokksleiki í mótum á vegum KSÍ þrátt fyrir ungan aldur og varð á dögunum yngsti leikmaður í sögu Njarðvíkur til að skora í Íslandsmóti.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Njarðvíkur.