Freyr valdi tvo Keflvíkinga í hópinn
Sigurbergur og Hilmar á leið til Kína
Keflvíkingurinn Freyr Sverrisson, landsliðsþjálfari U15 karla í knattspyrnu, hefur valið 18 leikmenn sem taka munu þátt í knattspyrnukeppni Ólympíuleika ungmenna dagana 15. - 29. ágúst, en leikarnir fara fram í Nanjing í Kína. Þar af eru tveir efnilegir leikmenn frá Keflavík sem leika munu með liðinu. Það eru þeir Sigurbergur Bjarnason og Hilmar Andrew McShane. Báðir eiga þeir feður sem hafa gert það gott í fótboltanum í gegnum tíðina. Sigurbergur er sonur Bjarna Jóhannssonar þjálfara sem m.a. hefur þjálfað Grindavík, ÍBV, Breiðablik og Stjörnuna. Hilmar er sonur Skotans Paul McShane sem leikið hefur á Íslandi um árabil við góðan orðstír, lengst af lék hann með Grindavík.
Sigurbergur Bjarnason leikur í 3. flokki í Keflavík.