Bygg
Bygg

Íþróttir

Freyja í 2. sæti - Nálægt því að verða atvinnumaður
Mánudagur 30. apríl 2012 kl. 12:17

Freyja í 2. sæti - Nálægt því að verða atvinnumaður



Freyja Sigurðardóttir hafnaði í 2. sæti á European Cup Pro mótinu sem fór fram um helgina í Madríd. Mótið er sérstakt að því leiti að sigurvegarar í öllum flokkum eiga kost á að fá atvinnumannakort. Freyja var því einu sæti frá því að verða atvinnumaður í fitnessíþróttinni.

Frá því Íslendingar hófu að keppa á erlendri grundu er þetta tvímælalaust það næsta sem íslenskur keppandi hefur verið frá því að næla sér í atvinnumannakort. Handhafar atvinnumannakorta eiga kost á að keppa á stórmótum þar sem miklar peningafjárhæðir eru í boði auk þess sem þeim gefst kostur á að gera samninga við alþjóðleg fyrirtæki í líkamsræktargeiranum.

Upphefðinni við það að fá atvinnumannakort fylgir hinsvegar sá ókostur að handhafar þess mega ekki keppa á áhugamannamótum. Flest mót sem haldin eru í Evrópu eru áhugamannamót. Freyja hefði því þurft að hætta keppni hér heima og snúa sér að keppnum í Bandaríkjunum þar sem flest atvinnumannamótin fara fram ef hún hefði hirt gullið.

Freyja hafði á orði í samtali við Víkurfréttir að það hefði verið æðislegt að ná því að keppa meðal atvinnumanna. „Ég næ þessu næst. Þegar maður er svona nálægt þá gefst maður ekki upp,“ sagði Freyja sem kvaðst svekkt með að hafa misst af þessu tækifæri en var þrátt fyrir það sátt við árngurinn.

Freyja varð heildarsigurvegari á Íslandsmótinu í fitness fyrir skemmstu í Háskólabíói og er vafalaust í sínu besta formi þessa dagana.

Bílakjarninn
Bílakjarninn