Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Framtíðar júdóstjörnur UMFN
Miðvikudagur 21. febrúar 2018 kl. 11:15

Framtíðar júdóstjörnur UMFN

Um helgina fór fram Afmælismót Júdósambands Íslands sem er næst stærsta mótið af fjórum sem Júdósambandið heldur ár hvert. Júdódeild UMFN sendi 9 keppendur í mótið sem kepptu í 6 þyngdarflokkum. 

Jóhannes Pálsson sigraði -66kg flokk barna U15, 13-14 àra. Gabríel Ægir Vignisson Varð þriðji í -55kg flokki 13-14 ára drengja. Daníel Dagur Árnason sigraði -50kg flokk unglinga og Gunnar Örn Guðmundsson varð þriðji í -66kg flokki unglinga.

Public deli
Public deli

Ingólfur Rögnvaldsson varð annar í -81kg flokki unglinga þrátt fyrir að vera brákaður á nokkrum rifbeinum en hann keppti tveimur flokkum upp fyrir sig.
Gunnar Örn og Jóel kepptu einnig í flokki 18-20 áraen þeir eru einungis 15 ára á árinu. Ægir Már Baldvinsson sigraði -66kg U21 en hinn ungi Gunnar krækti í þriðja sæti í sama þyngdarflokki.

 


Ægir (í miðjunni) og Gunnar vinstra megin.