Framherji í fremstu röð
-Keflvíkingurinn Elías Már Ómarsson í ítarlegu viðtali
Hinn tvítugi Elías Már Ómarsson hefur sannarlega átt viðburðaríkt ár. Hann var að ljúka sínu fyrsta ári í atvinnumennsku í fótbolta. Hann heldur til í rólegu hverfi í útjaðri Osló á milli þess sem hann spilar fótbolta með einu stærsta félagi Noregs, Vålerenga. Keflvíkingurinn tvítugi er einn efnilegasti sóknarmaður Íslendinga um þessar mundir.
Elías er jarðbundinn og metnaðarfullur. Þrátt fyrir að hafa smá fé á milli handanna þá lét hann sér nægja að kaupa reiðhjól til þess að koma sér til og frá æfingum í Noregi. Það er ekki að sjá að þarna fari atvinnu - og landsliðsmaður í knattspyrnu. Pilturinn virðist pollrólegur yfir þessu öllu saman. Elías hefur alltaf haft gríðarlega hæfileika en þó hefur hann ýmislegt að sanna. Í yngri landsliðum var hann aldrei fastamaður eða í byrjunarliði. Það var ekki fyrr en hann vann sér inn sæti í 21 árs landsliðinu að hann varð lykilmaður. Það skilaði sér heldur betur en Elías hefur nú verið valinn tvívegis í A-landsliðið og fengið þar tækifæri.
Elías segist sjálfur vera framherji. Frá því að hann steig sín fyrstu skref með meistaraflokki, hefur hann ýmist leikið sem vængmaður eða sóknarmaður. Sama hefur verið uppi á teningnum hjá Vålerenga þar sem hann hefur leikið í þremur mismunandi stöðum.
Ekki láta útlitið blekkja þig
Metnaðurinn er sannarlega til staðar hjá þessum unga og efnilega leikmanni. Hann er flúraður eins og NBA leikmaður, með eyrnalokka í báðum og sítt hár, hann gæti allt eins verið nýkominn úr tónleikaferðalagi. Útlitið blekkir aðeins. Hann er rólyndispiltur sem veit fátt betra en að taka því rólega upp í sumarbústað. Hann smakkar ekki áfengi og þegar hann fer út á lífið þá lendir hann iðulega í því að skutlast með vini sína. Á vellinum er hann hins vegar ákveðinn og berst eins og ljón.
Líður best frammi
Elías var fyrst hugsaður sem kantmaður þegar hann kom til Noregs. Eftir að hann náði að láta ljós sitt skína í framlínunni breyttist sú hugsun þjálfaranna. „Ég hef alltaf verið framherji og mér líður best þar,“ segir Elías. Hann sat talsvert á bekknum þegar hann kom fyrst út til Noregs. „Ég vildi auðvitað fá að spila miklu meira en ég gerði. Ég fékk bara átta leiki í byrjunarliði. Ég vildi spila meira en auðvitað er ég ennþá ungur,“ segir hann.
„Það er hundleiðinlegt að vera á bekknum. Það tekur alveg á. Þá er bara undir þér komið að sanna þig. Þetta gefur þér meiri vilja til þess að vilja bæta þig og styrkir þig um leið.“
Elías telur að hann hafi bætt leik sinn á flestum sviðum frá því hann fór til Noregs. Jafnt andlega sem líkamlega. Hann segist vera orðinn hraðari en áður, nógu fljótur var hann fyrir.
Keflvíkingurinn er að upplifa æskudrauminn. Alvöru atvinnumennska þar sem lífið snýst um fótbolta. Lyftingar á morgnana, æfingar, morgunmatur með liðinu og svo aukaæfingar eftir hina hefðbundnu æfingu. Elías nýtir þjálfarana og aðstæðurnar til þess að vinna í ákveðnum hlutum sem hann telur þurfa að bæta. Fljótlega upp úr hádegi er vinnudagurinn svo búinn. Elíasi líður samt ekki endilega eins og atvinnumanni. „Ég veit það ekki. Þetta fyrsta tímabil er frekar skrýtið. Það er t.d. mjög skrýtið að fá einhverja athygli, maður er ekkert vanur því.“
Vålerenga er með einhverja heitustu stuðningsmenn í Noregi sem hafa tekið ástfóstri við Keflvíkinginn efnilega. Vanalega á heimaleikjum mæta á bilinu 6-8 þúsund áhorfendur. Þegar lið meistara Rosenborg mætti í heimsókn í sumar, mættu 22 þúsund manns á leikinn, en Vålerenga leikur á þjóðarleikvangi Noregs á meðan verið er að byggja nýjan völl fyrir liðið.
Eftir að hafa rætt stuttlega við Elías kom fljótlega í ljós að hann er með hugarfar atvinnumannsins. Flestir hefðu verið ánægðir með tækifæri með einu besta liði Noregs á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku. Hann veit að hann getur gert betur þrátt fyrir að hafa skorað fimm mörk á liðnu tímabili.
„Ég er nokkuð ánægður með frammistöðu mína á tímabilinu en auðvitað hefði ég viljað gera betur. Það hefði verið gaman að spila meira og enda ofar í töflunni. Það er samt ákveðinn léttir að vera búinn með eitt tímabil og hafa kynnst þessu, þá veit ég hvað ég er að fara út í á næsta ári.“
Elías gerði þriggja ára samning í Noregi en hann hefur sett sér markmið varðandi framhaldið. „Ég ætla vinna mér fast sæti í byrjunarliðinu og reyna að sanna mig. Ég ætla að reyna að setja nokkur mörk og leggja upp fyrir liðsfélagana.“
Hélt að landsliðskallið væri grín
Langt er síðan þrír Suðurnesjamenn hafa verið í landsliðinu í fótbolta á sama tíma. Elías ásamt Arnóri Ingva Traustasyni og Ingvari Jónssyni eru nú hluti af hópnum sem er að fara á EM næsta sumar. Samkeppnin er hörð og Suðurnesjadrengirnir eru ekki inn í myndinni eins og staðan er núna. Það kom Elíasi gríðarlega á óvart þegar hann var valinn fyrst í landsliðið fyrir um ári síðan.
„Ég var ekkert að átta mig á þessu. Ég bjóst kannski við því að vinna mig inn í A-landsliðið eftir svona fimm ár. Ég hélt reyndar fyrst að þetta væri grín. Ég var nýkominn af æfingu þegar ég fæ skilaboð á Facebook frá ljósmyndara landsliðsins, þar sem hann spyr hvort ég sé ekki að fara með liðinu til Flórída. Ég vissi ekkert. Ég fékk svo bara hringingu daginn eftir þar sem mér er boðið í hópinn. Þetta kom mjög á óvart.“
Elías tók þátt í æfingaleikjum með landsliðinu á dögunum en fékk þá aðeins að spreyta sig í nokkrar mínútur í síðari leiknum. „Ég bjóst reyndar ekkert við því að spila, það fengu það ekki allir,“ segir Elías og hann er ekki heldur að gera sér vonir um að komast á EM. „Ég er alls ekkert að búast við því og reyni að hugsa ekkert um það. Ég held að það sé lítill möguleiki fyrir mig að komast inn í þetta samheldna lið núna.“
„Mér finnst ég alveg hafa getuna til þess að vera í þessum æfingahóp. Mér verður eiginlega að finnast það því annars er sjálfstraustið bara niðri. Þeir eru reyndari leikmenn, en maður verður bara að plata sjálfan sig í það að þetta sé bara venjulegur fótbolti, þá hverfur stressið.“
Um atvinnumennsku og athygli:
„Þegar fólk heyrir orðið atvinnumaður þá fer það að hugsa um góða lífið og peninga. Það eru auðvitað peningar í fótbolta en það þarf líka að vinna mikið fyrir þessu. Það koma upp erfiðir tímar þar sem þú ert mikið einn og ert mikið að ferðast. Ég hef það samt nokkuð gott og er ekki að kippa mér mikið upp við þetta allt saman. Ég er sáttur á hjólinu mínu,“ segir Elías léttur.
„Ég hef trú á því að ná lengra en það er undir mér komið hversu langt ég vil ná. Hversu hart ég legg að mér og hversu mikla ástríðu og metnað ég hef fyrir þessu. Það er bara þannig að ef þú ert með ástríðu fyrir fótbolta þá nærðu lengra en aðrir. Mér finnst ég hafa hana og stefni á að fara miklu lengra.“
Gummi Steinars um Elías:
Elías hefur mikla hæfileika
Guðmundur Steinarsson, marka- og leikjahæsti leikmaður Keflvíkinga frá upphafi, lék með Elíasi þegar hann var að stíga sín fyrstu skref með Keflavík.
„Elías hefur mikla hæfileika. Hann er mjög áræðinn í að sækja á markið og vill helst ekkert flækja það mikið. Fara stystu leið, sem hentar honum vel þar sem hann hefur góðan hraða bæði með og án bolta. Elías hefur líka góða skottækni og finnst mér í raun skotharkan hans virkilega góð fyrir svona ungan peyja. Einnig líður honum vel með boltann og er óhræddur að sækja á marga varnarmenn sem er kostur í boltanum í dag, þar sem flest lið spila með einn sóknarmann. Það sést mikill munur á honum síðan hann fór til Noregs og ef hann heldur áfram að bæta leik sinn og að sjálfsögðu þarf heppni með meiðsli og annað að spila inní líka, þá á Elías eftir að eiga flottan feril sem atvinnumaður.“