Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Fræknir feðgar í Futsal-liði Keflavíkur
Þriðjudagur 17. ágúst 2010 kl. 15:22

Fræknir feðgar í Futsal-liði Keflavíkur


Eins og fram hefur komið tekur Keflavík þessa dagana þátt í undanriðli Futsal Cup, Evrópukeppninnar í Futsal innanhússknattspyrnu, en riðillinn er leikinn hér á landi.  Í liði Keflavíkur er blanda yngri og eldri leikmanna og sem dæmi um aldursbilið má nefna að feðgarnir Zoran Daníel Ljubicic og Bojan Stefán Ljubicic leika saman með liðinu.
Zoran var leikmaður Keflavíkur á sínum tíma og var m.a. fyrirliði bikarmeistaraliðsins árið 2004.  Hann hefur nú snúið sér að þjálfun og er yfirþjálfari yngri flokka Keflavíkur.  Bojan er hins vegar að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki og hefur verið reglulega í leikmannahópnum undanfarin tvö ár.  Hann á þegar nokkra leiki að baki með Keflavík en Bojan er nýorðinn 18 ára.

Futsal-riðlinum lýkur á Ásvöllum í Hafnarfriði í dag, þriðjudag. Vimmerby IF frá Svíþjóð og franska liðið Kremlin Bicetre United mættust kl. 15:00 og keppninni lýkur svo kl. 17:30 þegar Keflavík mætir Club Futsal Eindhoven frá Hollandi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024