Fótboltinn byrjar aftur á morgun
Leikið án áhorfenda
Íslandsmótinu í knattspyrnu verður áframhaldið á morgun, 14. ágúst, þegar nálægðartakmörk í íþróttum verða rýmkuð. Á upplýsingafundi almannavarna í dag kom fram að sóttvarnalæknir mun ekki leyfa áhorfendur á kappleikjum á næstunni.
Leikirnir í Lengjudeild karla og 2. deild karla tilheyra 11. umferð þótt aðeins sé búið að leika átta umferðir í hvorri deild (að undanskildum leik Völsungs og Víðis sem var eini leikurinn sem fór fram í níundu umferð 2. deildar). Leikjum í 9. og 10. umferð var frestað og hefur ekki verið fundið nýjar dagsetningar.
Suðurnesjaslagur í Vogunum
Fyrsti leikur verður Suðurnesjaslagur í 2. deild karla þegar Þróttarar taka á móti Víðismönnum. Leikurinn hefst klukkan 19.00 á Vogaídýfuvellinum. Þróttarar eru um miðja deild nú þegar átta umferðum er lokið á meðan Víðismenn þurfa að snúa sínu gengi við en þeir hafa tapað síðustu fjórum leikjum og eru óþægilega nálægt fallsæti. Víðir mætti botnliði Völsungs frá Húsavík í eina leik níundu umferðar sem var leikinn áður en hlé var gert á deildinni.
Njarðvíkingar leika einnig á morgun í 2. deild en þeir sækja heim topplið Hauka. Njarðvík situr í fjórða sæti aðeins fjórum stigum á eftir Haukum sem hefur átján stig og hefst leikur þeirra á Ásvöllum klukkan 19:15.
Á laugardaginn leika bæði Suðurnesjaliðin á útivelli í Lengjudeild karla en Grindavík leikur heima í 2. deild kvenna
Grindvíkingar fara á Reyðarfjörð og leika þar gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði í Lengjudeild karla. Grindavík situr í sjötta sæti deildarinnar og hefur gert jafntefli í síðustu fimm leikjum, Leiknir er í tíunda sæti.
Keflavík leikur á Grenivík og mætir þar liði Magna sem situr á botni Lengjudeildarinnar á meðan Keflvíkingar eru í þriðja sæti eftir átta umferðir.
Grindavíkurstelpur taka á móti Hömrunum frá Akureyri á Grindavíkurvelli klukkan 16:00. Grindavík situr í 2. sæti deildarinnar og hefur leikið sex leiki.
Toppliðið fær botnliðið í heimsókn á sunnudag
Keflvíkingar sitja á toppi Lengjudeildar kvenna eftir sjö umferðir. Keflavíkurstelpur taka á móti botnliði Völsungs á Nettóvellinum klukkan 16:00 á sunnudag, sá leikur tilheyrir 10. umferð.
Í auglýsingu heilbrigðisráðherra sem var birt þann 12. ágúst segir:
Nálægðartakmörkun í íþróttum
Þrátt fyrir meginregluna um tveggja metra nálægðartakmörkun verða snertingar heimilar milli íþróttafólks á æfingum og í keppnum. Aftur á móti skal virða tveggja metra regluna í búningsklefum og á öðrum svæðum utan keppni og æfinga. Aðrir, meðal annars þjálfarar, starfsmenn og sjálfboðaliðar, skulu ávallt virða tveggja metra regluna. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands skal setja sérsamböndum sínum nánari reglur í samráði við sóttvarnalækni, meðal annars um einstaklingsbundnar sóttvarnir, sótthreinsun búnaðar, framkvæmd æfinga og keppna.