Þriðjudagur 2. apríl 2002 kl. 18:07
Fótboltastrákar hreinsa Nikkel-svæðið

Nikkelsvæðið hefur verið mikið í umræðunni undanfarið en nú bætist jákvæð frétt inn í umræðuna. Þannig er mál með vexti að 4.fl. karla í knattspyrnu í Keflavík er að fara í keppnisferð til Danmerkur í sumar, nánar tiltekið á Dana Cup í Hjörring á norður Jótlandi. Meðal fjáröflunar er verk sem þeim bauðst að taka að sér en það er yfirborðshreinsun á Neðra-Nikkel. Þeir byrja í dag kl. 17:00 en áætlað er að vera þar þar til að það rökkvar.