Fóru 5 kílómetra á höndum
Fimleikadeild Keflavíkur stóð fyrir ansi skemmtilegri fjáröflun á dögunum. Sjá mátti fimleikafólk á handahlaupum um Reykjanaesbæ en alls var farið um 5 kílómetra leið á handahlaupum einum saman. Nú í næstu viku fer fram innanfélagsmót hjá Keflvíkingum en mótið fer fram dagana 16. og 17. maí næstkomandi.