Bygg
Bygg

Íþróttir

Þriðjudagur 13. mars 2001 kl. 02:44

Formennirnir spá fyrir úrslitin

VF fékk formenn Suðurnesjaliðanna til að gera upp tímabilið hingað til og spá í úrslitakeppnina en fyrsta umferðin hefst á fimmtudagskvöldHrannar Hólm formaður kkd. Keflavíkur segir meiðsl leikmanna vera helstu ástæðu þess að engir titlar hafa unnist hjá Keflavík, enn sem komið er."Tímabilið hófst vel hjá okkur og við vorum skrambi góðir í haust. En þá tóku meiðslin völdin af Sigga þjálfara og liðið gaf töluvert eftir. Tapið gegn Hamri í bikarnum olli miklum vonbrigðum en staðan í deildinni er viðunandi miðað við meiðsli. Fyrir utan meiðslin þá hafa nokkur klaufaleg töp skemmt fyrir okkur og liðið hefur ekki sýnt nægjanlegan stöðugleika. Calvin Davis hefur leikið vel, en enginn annar hefur náð að halda háum standard í allan vetur þótt flestir leikmanna hafi átt góða spretti, nú síðast Gaui Skúla sem hefur verið geysiöflugur síðustu vikurnar."

Veit að við getum komist í úrslit og orðið meistarar
"Loksins, loksins eru líkur fyrir því að þjálfarinn geti notað alla leikmenn. Falur og Hjörtur eru að ná sér af meiðslum og þar að auki mun Fannar hjálpa okkur mikið í baráttunni, en hann er kominn til landsins í nokkra vikna frí. Því tel ég að liðið eigi að geta verið sterkara nú en undanfarna mánuði og veit að við getum komist í úrslit og orðið meistarar" sagði Hrannar.

Fjögur lið álíka sterk um þessar mundir
"Þó ég hafi óblilandi trú á mínum mönnum er ljóst að a.m.k. þrjú önnur lið hafa burði til að vinna titilinn, Njarðvík, KR og Tindastóll. Liðin hafa öll sterka leikmenn og eru hávaxnir og öflugir undir körfunum. Grindavík gæti komið á óvart en mér finnst hæpið að 3ja stiga skot dugi til að fara alla leið. Eins og oftast áður eru tvö atriði sem skipta mestu máli þegar komið er að úrslitakeppninni, en það eru meiðsli og andlegur styrkur, þ.e.a.s. barátta og vilji til sigurs."

Sveinbjörn Ægir Ágústsson formaður kkd. Grindavíkur fannst Hamar hafa komið mest á óvart í vetur. "Varðandi veturinn þá kemur hann mér ekkert sérstaklega á óvart, nema Hamar það lið hefur komið mér virkilega á óvart og eiga hrós skilið. Einnig reiknaði ég ekki með því að Skallagrímur mundi ná svona langt."

Áhuginn eitthvað að dvína
"Mér finnst eins og áhuginn á körfuboltanum sé eitthvað að dvína og þó aðallega hér á Suðurnesjum. Mér hefur fundist þessi vetur hafa verið sérstaklega slakur fyrir Suðurnesjaliðin. Áhorfendum hefur fækkað mjög mikið. Ég veit að það er margt sem fólk hefur um að velja varðandi áhugamálin og því getur verið erfitt að ná til þeirra eins vel og hér áður,
en eitthvað verður að gera. Ég hef ekki lausina núna, en vonandi kemur hún fyrr en síðar. Þetta ekki bara við um körfuboltann.

Bjartsýnn eftir Kjörísbikarinn
"Ef ég sný mér sérstaklega að mínu liði þá var þetta kannski ekki alveg eins góður vetur og maður var að vona. Þegar við unnum Kjörísbikarinn varð maður talsvert bjartsýnn og við komnir í fjögurra liða úrslit í bikarnum líka. Þá kom sjokkið að falla út úr bikarnum og liðið var lengi að jafna sig á því og ofan á þetta kom svo kanaævintýrið sem er vonandi lokið núna. Maður verður bara að vera jákvæður með framhaldið það kemur vetur eftir þennan vetur. Ef við dettum fljótlega út úr úrslitakeppninni þá þýðir ekki að leggja árar í bát. Maður verður að róa áfram til þess að þetta sökkvi ekki."

Alexander Ragnarsson formaður kkd. Njarðvíkur finnst tímabilið hafa verið mjög jafnt og spennandi."Þessi vetur hefur verið mjög spennandi og margir góðir leikir og hefur spennan í lokaumferðunum sjaldan verið jafn mikil . Það sýndi sig þar að ekkert lið getur bókað sigur fyrir fram og á ég því von á að úrslitakeppnin verði mjög jöfn og spennandi.

Tók tíma að móta liðið
"Það urðu þó nokkrar breytingar á okkar liði í Njarðvík fyrir þetta tímabil. Við réðum nýja þjálfara sem eru að þjálfa sitt fyrsta tímabil ásamt því að leika með liðinu en það hafa þeir gert í mörg ár. Einnig misstum við nokkra lykilmenn og fengum til okkar nýja leikmenn. Við gerðum okkur því grein fyrir því að það gæti tekið nokkurn tíma að móta liðið og fór liðið kannski ekki að sýna sitt rétta andlit fyrr en eftir áramót og höfum við verið að spila nokkuð vel frá áramótum þó við höfum tapað leikjum í lokin þá tryggðum við okkur samt deildarmeistaratitilinn sem sannar það að við höfum verið að leika vel í vetur."

Endurkoma Friðriks mikill fengur
"Þá fengum við Friðrik Stefánsson aftur frá Finnlandi rétt fyrir jól en hann varð ekki löglegur fyrr en eftir áramót og styrkti hann liðið mikið."

Spárnar

Hrannar:
"Njarðvík vinnur Borgarnes og mínir menn taka Hamar því vanmat er bannað í úrslitakeppni. Á milli Hauka og KR og Tindastóls verða hörkuleikir og erfitt að spá. Ég held þó að liðið sem vinni fyrsta leikinn sigri í báðum tilfellum. En hvernig sem þeir leikir fara spái ég því að Keflavík og Njarðvík mætist í svakalegri úrslitarimmu og ég hef fulla trú á því mínir menn landi þeim stóra í vor."

Sveinbjörn Ægir:
"Njarðvík tekur Skallagrím 2-0 og einvígi Keflavíkur og Hamars fer á sama veg. Mínir menn sigra Tindastól í úrslitaleik á Króknum 1-2 og KR slær Hauka út 2-1. Of snemmt er að spá í undanúrslitin."

Alexander:
"Því spái ég að Njarðvík vinni Skallagrím, Grindavík vinni Tindastól, Keflavík leggur Hamar og Haukar slá út K.R. Síðan spái ég því að Njarðvík og Keflavík leiki til úrslita og auðvitað ætlum við okkur ekkert nema sigur þar þannig að mín spá er Njarðvík Íslandsmeistarar 2001."

Bílakjarninn
Bílakjarninn