Bygg
Bygg

Íþróttir

Formaður KKÍ: „Drengileg ákvörðun hjá Keflavík“
Miðvikudagur 6. apríl 2005 kl. 18:06

Formaður KKÍ: „Drengileg ákvörðun hjá Keflavík“

Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, segir ákvörðun Keflavíkur um að falla frá kæru annars leiks Keflavíkur og Snæfells drengilega. Í pistli eftir Ólaf sem birtur er á vefsíðu KKÍ segir formaðurinn einnig að lög KKÍ séu ekki hönnuð fyrir atburði sem þessa og því hafi stefnt í mikla óvissu með framhald málsins einkum varðandi tímaferli vegna mögulegra áfrýjanna.

Vegna mistaka sem áttu sér stað á ritaraborðinu í leiknum sem fram fór í Stykkishólmi voru tvö stig tekin frá Keflvíkingum. Keflvíkingar kærðu niðurstöðu leiksins í kjölfarið en féllu síðan frá kærunni og telur Ólafur að ákvörðun Keflavíkur sé til þess fallin að auka einbeitningu liðsins í næstu leikjum í stað þess að sóa orku í umrætt deilumál. Ólafur segir það að setja hugarfarið ofar bólgnum fingri kunni að vera farsælt og af ákvörðunum sem þessum séu viðkomandi menn að meiri og að slíkar ákvarðanir beri að virða.

Pistil formannsins er hægt að lesa hér

Bílakjarninn
Bílakjarninn