Bygg
Bygg

Íþróttir

Fluttur nefbrotinn á sjúkrahús
Föstudagur 21. október 2011 kl. 10:04

Fluttur nefbrotinn á sjúkrahús

James Bartolotta, leikmaður ÍR, var fluttur með sjúkrabíl frá Grindavík eftir hörku samstuð við J´Nathan Bullock í leik Grindavíkur og ÍR í Iceland Express deild karla í körfubolta í gærkvöld. Bartolotta fékk það slæmt högg að hann vankaðist og nefbrotnaði illa. Bartolotta fiskaði ruðning á Bullock en sá síðarnefndi virtist fara með olnbogann beint í nefið á ÍR-ingnum og hann lág óvígur eftir. J´Nathan Bullock reyndi fyrir sér í amerískum fótbolta á sínum tíma og er mikill skrokkur, segir á vef Grindavíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn