Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Fjórir úr Keflavík fengu svarta beltið
Keflvíkingarnir.
Mánudagur 20. október 2014 kl. 09:01

Fjórir úr Keflavík fengu svarta beltið

Yfirþjálfari Keflavíkur fékk meistaragráðu í taekwondo.

Helgi Rafn Guðmundsson, yfirþjálfari Keflavíkur til margra ára, tók 4. dan, sem er meistaragráða í taekwondo, á svarabeltisprófi um helgina. Það er mikill heiður fyrir Keflavíkurdeildina að hafa þjálfara með þessa gráðu, en örfáir Íslendingar hafa náð meistaragráðu í taekwondo.

Taekwondosamband Íslands hélt svartbeltispróf sl. laugardag. Átta iðkendur tóku að þessu sinni próf frá þremur félögum; Keflavík, Aftureldingu og Ármanni. Prófdómarar voru Jamshid Mazaheri (7. gráðu svart belti) og Eduardo Rodriguez (5. gráðu svart belti). Að sögn Helga Rafns var prófið erfitt en allir iðkendur stóðust það að lokum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Próftakar frá Keflavík voru:
    Daníel Arnar Ragnarsson 1. poom svartbeltisgráða
    Ólafur Þorsteinn Skúlasson 1. dan svartbeltisgráða
    Ægir Már Baldvinsson 1. dan svartbeltisgráða
    Helgi Rafn Guðmundsson 4. dan svartbeltisgráð

Mikið er um að vera í taekwondo á Suðurnesjunum og hafnar eru fastar æfingar í Sandgerði og Vogum ásamt því sem æfingar hafa verið í Grindavík og Keflavík í langan tíma. Um næstu helgi verður haldið
bikarmót í taekwondo en Suðurnesjamenn hafa átt miklu velgengi að fagna á þeim mótum á síðastliðnum árum.
 

Próftakar og dómarar.

Keflvíkingarnir ásamt dómurunum.