Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Fjórir titlar á ÍM 50
Mánudagur 22. mars 2010 kl. 08:49

Fjórir titlar á ÍM 50


Sundfólk ÍRB vann sigur í fjórum greinum á ÍM 50 2010 sem fram fór um helgina. Frammistaðan var góð stemmningin sömuleiðis hjá sundfólkinu. Þeir sundmenn liðsins sem æfa í Bandaríkjunum áttu ekki heimangengt að þessu sinni og því var nokkuð kynslóðabil í liði ÍRB. Þó sérstaklega karlamegin, því liðið var einnig án Gunnars Arnar Arnarsonar sem fór nýlega í hnéaðgerð.
Framtíðin er björt hjá félaginu því yngra sundfólkið var að gera fína hluti. Einn sundmaður ÍRB náði lágmörkum í unglingalandslið SSÍ sem keppir í Luxemborg í apríl. Þar var á ferðinni Jóhanna Júlía Júlíusdóttir sem synti frábært 200m fjórsund og náði um leið lágmörkum í liðið.

Þeir sem urðu íslandsmeistarar voru:

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson. 50m og 200m baksund.

Kristinn Ásgeir Gylfason: 100 og 200m flugsund.


Þeir sem unnu til verðlauna voru:

Jóna Helena Bjarnadóttir: silfur í 200m og 400m fjórsundi og brons í 200m flugsundi.

Jóhanna Júlía Júlísdóttir : Silfur í 200m baksundi og brons í 100m baksundi.

Lilja Ingimarsdóttir: Silfur í 50m, 100m og 200m bringusundi.

Ólöf Edda Eðvarðsdóttir: Brons í 200m bringusundi.

Soffía Klemenzdóttir: Silfur í 50m baksundi og brons í 200m baksundi.

Svandís Þóra Sæmundsdóttir: Silfur í 100m og 200m flugsundi.
---

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Mynd/ÍRB - Spennan er oft óbærileg á áhorfendapöllunum.