Fjórir Suðurnesjamenn í U-17 liði Íslands
Fjórir Suðurnesjamenn hafa verið valdir til þátttöku í U-17 ára landsliði karla í knattspyrnu. Um 54 manna æfingarhóp er að ræða sem verður við æfingar nú um helgina.
Gunnar Guðmundsson, landsliðsþjálfari U-17 karla, hefur valið 54 leikmenn til æfinga en um er að ræða undirbúningsæfingar fyrir Norðurlandamót U17 karla sem haldið verður hér á landi og hefst 2. ágúst.
Grindvíkingarnir Daníel Leó Grétarsson og Hákon Ívar ólafsson eru í hópnum og Keflvíkingarnir Elías Már Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson.
Ísland mun verða með tvö lið á þessu móti en aðrar þjóðir eru: England, Færeyjar, Finnland, Noregur, Danmörk og Svíþjóð. Mótið fer fram á Norðurlandi og verður leikið á Akureyri, Dalvík, Ólafsfirði, Húsavík og Sauðárkróki.
Mynd: Grindvíkingurinn Jósef Kristinn Jósefsson er núverandi leikmaður U-21 liðs Íslands og fyrrum U-17 liðsmaður en Grindvíkingar eiga nú tvo fulltrúa í U-17 liðinu.