Fjórir frá Suðurnesjum í U-18
Landsliðsþjálfararnir Benedikt Guðmundsson og Einar Árni Jóhannsson hafa valið 12 manna hópa hjá U-16 ára og U-18 ára landsliðum karla í körfuknattleik. Enginn Suðurnesjamaður komst í hópinn hjá U-16 ára liðinu en fjórir Suðurnesjamenn komust í hópinn hjá U-18 ára liðinu.
Þeir Elías Kristjánsson, Rúnar Ingi Erlingsson og Hjörtur Hrafn Einarsson koma allir frá Njarðvík í U-18 ára hópnum en Þröstur Leó Jóhannsson kemur frá Keflavík en Þröstur og Hjörtur eru landsleikjahæstu leikmenn liðsins báðir með 40 landsleiki.
U-16 ára hópurinn er eftirfarandi:
Ægir Þór Steinarsson, Fjölnir
Tómas Heiðar Tómasson, Fjölnir
Arnar Pétursson, Breiðablik
Þorgrímur Björnsson, Valur
Trausti Eiríksson, Skallagrímur
Arnþór Guðmundsson, Fjölnir
Haukur Óskarsson, Haukar
Egill Egilsson, Snæfell
Haukur Pálsson, Fjölnir
Ívar Örn Hákonarson, Breiðablik
Daði Berg Grétarsson, Fjölnir
Sigurður Þórarinsson, Skallagrímur
Einar Árni Jóhannsson hefur valið 12 manna hóp í U-18 ára landsliði karla. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn:
4 Elías Kristjánsson UMFN Bakvörður 13 landsleikir
5 Atli Rafn Hreinsson Snæfell Bakvörður 13 landsleikir
6 Þröstur Jóhannsson Keflavík Framherji 40 landsleikir
7 Víkingur Sindri Ólafsson KR Bakvörður 13 landsleikir
8 Ari Gylfason FSu Bakvörður Nýliði
9 Rúnar Ingi Erlingsson UMFN Bakvörður 26 landsleikir
10 Björgvin Valentínusson FSu Miðherji Nýliði
11 Örn Sigurðarson KR Framherji 18 landsleikir
12 Baldur Ragnarsson Þór Þ Bakvörður 13 landsleikir
13 Páll Fannar Helgason Valur Bakvörður 13 landsleikir
14 Hjalti Friðriksson Valur Framherji 13 landsleikir
15 Hjörtur Hrafn Einarsson UMFN Framherji 40 landsleikir
12 manna hópar hjá U-16 stúlkna og U-18 kvenna verða birtir á morgun.