Bygg
Bygg

Íþróttir

Fjórir frá ÍRB í Ólympíuhópnum
Miðvikudagur 21. febrúar 2007 kl. 13:15

Fjórir frá ÍRB í Ólympíuhópnum

Sundsamband Íslands sendi frá sér í dag fyrsta val í Ólympíuhóp SSÍ. Alls voru fjórir sundmenn frá ÍRB í hópnum. Sundmennirnir eru eftirfarandi:

 

Erla Dögg Haraldsdóttir, 1989, ÍRB

Birkir Már Jónsson, 1987, ÍRB

Davíð Hildiberg Aðalsteinsson, 1990, ÍRB

Guðni Emilsson, 1989, ÍRB

 

Sundsamband Íslands bindur ávallt miklar vonir við þá sundmenn sem valdir eru í Ólympíuhópinn en þeir koma til greina sem fulltrúar Íslands á næstu Ólympíuleikum sem fram fara í Peking á næsta ári.

 

Um helgina fer svo fram Gullmót KR í innilauginni í Laugardal þar sem ÍRB hyggur á hefndir frá því í fyrra. ,,Við ætlum okkur að vinna mótið en mótið frá því í fyrra er okkur í fersku minni því að erlendur klúbbur kom og lagði okkur að velli. Nú verður engin miskunn og allt keyrt í botn,” sagði Steindór Gunnarsson, annar tveggja þjálfara ÍRB en Reykjanesbæjarliðið hefur í gegnum tíðina átt góðri lukku að stýra í þessu móti.  

 

[email protected]

Bílakjarninn
Bílakjarninn