Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Fjórir af Suðurnesjum í U 19
Þriðjudagur 10. janúar 2006 kl. 19:26

Fjórir af Suðurnesjum í U 19

Fjórir knattspyrnumenn frá Suðurnesjum hafa verið valdir í æfingahóp U 19 ára landsliðs karla en þrír koma frá Grindavík og einn úr Keflavík.

Grindvíkingarnir Alexander Veigar Þórarinsson, Bogi Rafn Einarsson og Emil Símonarson voru valdir í hópinn en fulltrúi Keflvíkinga í æfingahópnum er Benedikt Birkir Hauksson.

Keflvíkingurinn Guðni Kjartansson þjálfar U 19 ára liðið en æft verður dagana 14. og 15. janúar í Egilshöll, Fífunni og Reykjaneshöll.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024