Fjórði tapleikur Njarðvíkinga í röð
Afleitt gengi Njarðvíkur í Iceland Express deild karla er mörgum umhugsunarefni en liðið vermir nú næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig. Liðið hefur tapað fimm leikjum en unnið tvo í fyrstu sjö umferðum Íslandsmótsins. Í gær tapaði Njarðvík á heimavelli gegn Fjölni með 24ra stiga mun, 97-73. Er það fjórði tapleikur Njarðvíkinga í röð.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik. Í öðrum leikhluta tóku gestirnir öll völd á vellinum og skoruðu 32 stig gegn 19. Í fjórða leikhluta skoruðu Njarðvíkingar einungis 12 stig á meðan Fjölnir skoraði 26. Staðan í hálfleik var 54-40 fyrir Fjölni.
Christopher Smith var stigahæstur í Njarðvíkurliðinu með 20 stig og 14 fráköst.
--
VFmynd - Jóhann Ólafsson og félagar hans í Njarðvík verða að spýta í lófana og laga stöðu liðsins.