Fjör á Samkaupsmóti í körfu
Samkaupsmótið er haldið í Reykjanesbæ um helgina en mótið er eitt af stærstu íþróttamótum landsins og langstærsta körfuboltamótið.
Það er Barna- og unglingaráð körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur sem undirbúa mótið en sem dæmi um stærð þess má nefna að þátttakendur síðastliðin ár hafa verið um 800 - 1000 og komið alls staðar af á landinu.
Það hlýtur að vera eftirtektarvert að andstæðingar á vellinum geti tekið sig saman með þessum hætti og haldið glæsilegt körfuboltamót fyrir krakka á Íslandi en Samkaupsmótið hefur styrkt mjög samstarf íþróttafélaganna Fyrir hvert mót er gefinn út veglegur 20 síðna bæklingur og þar má finna allar upplýsingar um mótið. Helstu styrktaraðilar eru Samkaup og Reykjanesbær.
Boðið er uppá margskonar afþreyingu milli leikja. Öll liðin fara í bíó, í sund og einnig verður Reykjaneshöllin opin alla helgina en þar verða t.d. hoppukastalar, körfubolti, fótbolti, fólf (frisbee-gólf) og margt fleira. Um er að ræða 7.840m² leiksvæði. Hápunktur mótsins er svo auðvitað kvöldvakan á laugardag en þar koma venjulega fram landsþekktir skemmtikraftar.
Það þarf mikla skipulagningu til að þetta gangi allt saman upp! Einvala lið sjálfboðaliða frá báðum félögum skipta með sér verkum og markmiðið er ávallt að næsta mót verði enn betra en það síðasta.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag á mótinu. Von er á fleiri myndum sem munu birtast í myndasafni vf.is
Vefsíða mótsins er www.samkaupsmot.blog.is.
Það voru sumir þreyttir eftir leiki dagsins. Fjör hér að neðan og að ofan.