Fjör á innanfélagsmóti Fimleikadeildar Keflavíkur
Fyrstu hlutar Innanfélagsmóts Fimleikadeildar Keflavíkur voru í gær, uppstigningardag, fimmtudaginn 9.maí. Þetta er 28. Innanfélagsmótið sem haldið er.
Í fyrsta hlutanum voru við með stráka og stelpur frá 5-7 ára. Í þeim hluta mátti finna flestu byrjendur félagsins.
Þar sem Fimleikadeild Keflavíkur er fyrirmyndarfélag FSÍ þá fá allir iðkendur verðlaun undir 9 ára og fékk hvert barn viðurkenningu fyrir sitt besta áhald.
Í öðrum hluta var Fimleikadeildin með stelpur 7-10 ára sem eru komnar aðeins lengra og hafa verið að keppa í 6.þrepi íslenska fimleikastigans á vinamótum hjá öðrum félögum. Þær fengu allar verðlaun fyrir sitt besta áhald. Ásamt þeim voru við með 8-13 ára stráka að keppa í 5. þrepi íslenska fimleikastigans.
Þar á fimleikadeildin stráka sem hafa keppt á FSÍ mótum í vetur og stráka sem eru að stíga sín fyrstu skref í keppni. Þeim strákum var skipt í tvo hópa. Þeir strákar sem eru vanir því að keppa, kepptu sín á milli og þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref kepptu sín á milli.
Í þriðja hluta var Fimleikadeildin með hópfimleika. Fyrstu keyrðu hóparnir sýningaumferðir eins og gert yrði í venjulegri keppni en þar sem við höfðum hópa með mismunandi getustig var ákveðið að hafa einstaklingskeppni líka þar sem iðkendur sem eru komnir svipað langt í sínum hópfimleikum kepptu sín á milli.
Í dag, föstudaginn 10. maí, erum við með fjórða og seinasta hluta mótsins. Þar erum við með áhaldafimleika kvenna sem eru að keppa í 5., 4., 3., 2. og 1. þrepi íslenska fimleikastigans. Þetta eru okkar iðkendur sem eru komnir lengst í fimleikum og hvetjum við alla til að koma á morgun og horfa á flotta fimleika. Þetta er í fyrsta sinn sem Fimleikadeild Keflavíkur hefur verið með börn í öllum þrepum íslenska fimleikastigans á Innanfélagsmóti. Í fyrsta þrepinu eigum við duglega stelpu sem var nýlega valin í unglingalandslið Íslands og er að fara út að keppa í Norðurlandameistarmóti í Noregi 24.-26. maí. Því má búast við flottum fimleikum og að sjálfsögðu duglegum og flottum stelpum.
Innmars hefst verður kl. 16:00 og 16:30 uppi í Akademíu við Krossmóa.
(Frétt frá Fimleikadeild Keflavíkur.)