Fjölskylduhátíð í Grindavík
Grindvíkingar taka á móti Fylki í Landsbankadeild karla í kvöld kl. 19:15 á Grindavíkurvelli. Grindvíkingar eru í 6. sæti deildarinnar með 13 stig en Fylkismenn eru í 3. sæti með 16 stig.
Árbæingar höfðu betur, 2-1, í fyrri viðureign liðanna í deildinni í sumar og var lengi vel rætt um þann leik sem Árbæjarránið þegar dómari leiksins gaf Fylki glórulausa vítaspyrnu og Fylkismenn jöfnuðu þá metin 1-1 og gerðu út um leikinn á lokasekúndunum eftir mark frá Christian Christiansen.
Leikurinn verður vafalaust spennandi í kvöld en fjörið hefst kl. 17:30 með fjölskylduhátíð Landsbankans og Knattspyrnudeildar Grindavíkur. Allir eru velkomnir í fjölskylduhátíðina þar sem grillaðar verða pylsur og Bárður og Birta munu bregða á leik.
Dagskrá fjölskylduhátíðarinnar í Grindavík í dag:
17:30
Grill-vagninn: Pylsur fyrir alla.
Svali og súkkulaði.
Hoppukastali fyrir börnin
Andlitsmálning fyrir krakka
18:15
Sproti fer á stjá og skemmtir sér og öðrum
18:30
Birta og Bárður stíga á svið
19:00
Fólk gerir sig klárt fyrir leikinn
19:15
Flautað til leiks - Hátíð lýkur
VF-mynd/ [email protected] - Frá 5-0 sigri Grindvíkinga á KR fyrr í sumar